16.6.2008 | 15:48
Bjarnargreiði
Ljót var sú frétt að Íslendingar hefðu aflífað bjarndýr sem hingað barst fyrir skömmu. Vissulega er ekkert gamanmál að fá hvítabjörn heim á hlað til sín en þar með er ekki sagt að nauðsynlegt sé að drepa þessar sjaldgæfu konungsgersemar hvenær sem færi gefst. Í okkar auðuga samfélagi eiga að vera til öll ráð og tæki til að vernda líf og limi þeirra sem fá björninn í heimsókn og jafnframt til að ná dýrinu lifandi. Úti um allan heim eru dýragarðar með menn á sínum snærum sem hafa atvinnu sína af því að fást við villidýr, án þess að drepa þau. Benda má á að Grænlendingar hafa mikla reynslu af að fanga hvítabirni og hví ekki að fá menn frá Kúlúsúk til að leggja á ráðin? Það getur varla verið svo flókið.
Sá björn sem nú sefur í æðarvarpinu að Hrauni á Skaga gefur okkur tækifæri til að bæta fyrir þá þjóðarskömm að hafa drepið bjarndýrið um daginn. Gefum honum líf!
Baldur Sigurðsson
Allt í biðstöðu" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Baldur Sigurðsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.